Íslenskir Loðboltar á Ferð

Höfum Gaman Saman!
Það er ekki óalgengt að fólkið sem finnur sig sem loðbolta séu utangarðs í daglegu lífi af ýmsum ástæðum og eiga erfitt með að gera félagslegar tengingar venjulega. Að vera í kringum aðra sem eru að kljást við svipaðar aðstæður getur gert mikið til að brjóta fólk út úr skelinni og leyfa sinni innri persónu að skína í gegn.
Taktu þátt í samfélaginu með IcelandFurs!
Það þarf ekki endilega að gerast meðlimur IcelandFurs til þess að taka þátt í áhugamálinu, en það er vissulega góður staður til að finna félagskap. Þess vegna hefur hópurinn nokkra spjallmiðla í sinni umsjá sem sjálfboðaliðar sjá um.
Þar sem fólk er fjölbreytt og landið er lítið, þá erum við opin fyrir að vera í samstarfi við aðra hópa til að skapa góðan grunn fyrir íslenska loðbolta samfélagið í heildina.
Okkar helsta markmið er að upplýsa íslendinga um áhugamálið og hafa gaman saman.
Discord spjallið okkar hefur verið í loftinu síðan 2019 og orðið einn stærsti sproti IcelandFurs hópsins í dag. Þetta í raun spjallborðið okkar og upplýsinga miðstöð samfélagsins, þar sem hægt er að skipuleggja og tilkynna hittinga, draga athygli að viðburðum, og taka þátt í ýmsum umræðum.
The Discord server has existed since 2019 and has become the largest branch of the IcelandFurs group today. It is essentially our forum and information center for the community, where you can plan and announce meetups, bring attention to events, and participate in various discussions.
Telegram biðstofan okkar er miðstöð sem þú kynnir þig og leyfir okkur að vísa þér á þær Telegram spjallrásir hópsin sem þig langar að taka þátt í. Telegram er tilvalinn staður fyrir spjalla saman í núinu eins og að vera í herbeki með stórum hóp af fólki.
The telegram waitingroom is where you introduce yourself and lets us invite you to the group's telegram channels that you wish to participate in. Telegram is ideal for chatting in the present moment like being in a crowded room.
Facebook hópur IcelandFurs hefur verið til staðar síðan 2013, það getur verið skemmtilegur staður til að deila áhugaverðu loðbolta efni með öðrum meðlimum hópsins.
The IcelandFurs facebook group has been around since 2013, and can be a fun place to share interesting furry related content with other members.