Það byrjaði með FurAffinity
Það er hægt að rekja sögu hópsins alla leið til 2006, þar sem einn áhugasamur loðbolti ákvað að hafa samband við aðra íslendinga sem voru einnig í loðbolta áhugamálinu (e. furry fandom) í gegnum vefsíðuna FurAffinity til að skipuleggja hittinga. Fólk kom saman með teiknibækurnar sínar og eyddu tíma saman við listsköpun og spjall á opnum svæðum, kaffihúsum, verslunamiðstöðum og í heimahúsum. Oft voru hittingarnir skipulagðir í kringum heimsóknir erlendra loðbolta sem vildu upplifa Ísland, eða áhugafólk sem hafði flutt erlendis og var að heimsækja heimalandið.
Það er gaman að nefna að hann Karnó mætti á einn fyrsta hittinginn. Hann er þekktur fyrir myndasögurnar sínar og hefur líklegast verið í þessu áhugamáli lengst af öllum íslendingum í dag. Hægt er að sjá hann í einu af heimilda myndböndunum um upphaf loðbolta áhugamálsins (e. furry fandom).
Frá 2006 og þar til hópurinn tók upp nafnið IcelandFurs þá var þetta allt saman frekar óformlegt og flestir hittingar snérust í kringum heimsóknir erlendra loðbolta, eða þeirra sem höfðu flutt erlendis og voru að kíkja heim.
IcelandFurs stofnað sem hópur
Það var á einum hittingi í Hamborgara Búllunni við Kringluna sumarið 2009 sem viðstaddir ákváðu að gera þessa hittinga að hóp undir nafninu IcelandFurs, og það í raun talið vera hvenær hópurinn var formlega stofnaður. Á meðal stofnenda voru Redward í hlutverki leiðtoga og MýraMidnight til stuðnings þar sem hún hafði verið á kreiki síðan 2006.
Markmið hópsins
IcelandFurs hópurinn hefur það markmið að skapa umhverfi þar sem íslenskir loðboltar geta komið saman og skipulagt viðburði og hittinga, fundið félagskap og fengið að njóta áhugamálsins saman með öðrum. Aukalega viðhöldum við þessari vefsíðu til að upplýsa almenning um áhugamálið á Íslensku.
Við erum opin öllum loðboltum sem hafa tengingu við Ísland, þar með talið erlendum loðboltum sem hafa áhuga á landinu og vilja heimsækja Ísland. Við erum meira segja opin fyrir samstarfi við aðra hópa til að styrkja loðbolta samfélagið í heildina.
Viðburðir og uppákomur
Með tilkomu hópsins var auðveldara að skipuleggja hittinga og ferðir á samkomur og viðburði bæði innanlands og erlendis svo fólk gæti mætt saman og fundið félagskap. Hingað til hefur það alltaf verið í höndum meðlima að leggja í hittinga, þeir sem voru einstaklega duglegir að skipuleggja viðburði einfaldlega stigu upp til að styrkja félagslífið. Ekki vera feimin við að koma með uppástungur og einhver er líklegur til að láta það gerast.
Árlegar bústaðarferðir hafa verið hefð síðan 2013 fyrir lögráða loðbolta í samfélaginu á hverju hausti, sem hefur verið einskonar smágerð Íslensk loðbolta samkoman fyrir okkur á eyjunni þar sem erlendir gestir hafa tekið þátt og fengið að upplifa landið. Takmarkað pláss er í þessar ferðir.
IcelandFurs vefsíðan
Vefsíða hópsins var fyrst í loftinu árið 2009 með spjallborði sem IcelandFurs.is í stuttan tíma upphaflega, lénið var tekið upp aftur árið 2024. Vefsíðan í dag var sett í loftið árið 2013 með lénið IcelandFurs.org undir beltinu. Tilgangur síðunnar er að bjóða upp á íslenskar upplýsingar um áhugamálið og vísa fólki á samfélagsmiðla hópsins.
Vöxtur hópsins
Í byrjun 2025 þá eru um 230 meðlimir (með hlutverkið) í Icelandfurs á discord spjallþjóninum, sem eru ekki eingöngu fólk sem býr á Íslandi, heldur einnig erlendir loðboltar sem hafa áhuga á Íslandi og vilja heimsækja landið. Í heildina eru líklegast miklu fleirri meðlimir, þar sem ekki allir eru endilega á discord. Stærsta Telegram spjallrásin okkar hefur 117 meðlimi þegar þetta var skrifað í lok mars.
Samfélagsmiðlar hópsins
Stærsti spjallmiðill IcelandFurs í dag er Discord. Einnig er IcelandFurs með Telegram rásir og Facebook hóp sem hægt er að ganga, þar sem allir eiga sér sína uppáhalds samfélagsmiðla. Þegar það kemur að því að vera sýnileg á öðrum samfélagsmiðlum, þá hefur virknin verið mjög misjöfn yfir árin. Helsta ástæðan þar að baki er sú að aðilinn sem sá um almenningstengsl fyrir hópinn upp að 2019 steig úr því hlutverki og afhenti aldrei alla samfélagsmiðla hópsins sem þau höfðu í höndunum. Við biðjum þessvegna fólk að vinsamlegast taka eftir því að ekki eru allir IcelandFurs aðgangar á netinu í umsjá IcelandFurs hópsins í dag (við höfum lista á vefsíðunni yfir viðurkennda samfélagsmiðla hópsins).