Þar sem Spilavinir hafa þennan æðislega huggulegan kjallara, þar sem hægt er að leigja borð til þess að spila saman bæði eigin spil eða valið úr risastóru úrvali af borðspilum á staðnum, þá ákváðu meðlimir IcelandFurs að skipuleggja einn hitting þar 5. Júlí.


Við borguðum fyrir 3 stór borð handa hópnum og mæting var æðisleg. Meðlimir mættu með slatta af spilum sjálf, en það hefði varla verið þörf á því af því að úrvalið í kjallaranum var rosalegt.
- Eitt borðið var tileinkað fyrir spunaspil, Dungeons and Dragons.
- Cards against Humanity var vinsælt þar sem einn meðlimur var með heilt safn af viðbótum, þar með talið loðbolta útgáfu.
- Krúttlega drekaspilið Flamecraft var líka spilað.
Þetta var einstaklega vel heppnaður hittingur og allir skemmtu sér æðislega, spilað eins lengi og leyfilegt var, þar til að við vorum nánast þau einu eftir í kjallaranum.