Kötturinn á kókómjólkurfernunum er klassískt dæmi um hvað telst sem umfangsefni loðbolta.

Kötturinn kom fyrst fram á fernunum árið 1975, sem kötturinn Branda sem hlustaði á tónlist á grammafóninum sínum. Í auglýsingum sást kötturinn stökkva út úr myndinni framan á fernunni og fá sér sopa af kókómjólk sem umbreytti þeim í ofurkött sem fór svo að byggja torfærubíl úr fernunni. Hann brunar svo af stað og minnir þig á að "Þú færð kraft úr kókómjólk!"
Ofurkötturinn var síðan nefndur Klói og tók yfir á umbúðum drykksins árið 1990.




Búningarnir hans Klóa
Yfir árin þá hafa verið gerðir tveir búningar af honum Klóa. Nýji búningurinn átti að vera miklu léttari en sá fyrsti.


Að tilefni þess að Kókómjólkin var að halda upp á 50 ára afmælið sitt árið 2023, þá var gerð hátíðarútgáfa með hvítu súkkulaði þar sem hann var klæddur fínasta sparigallanum sínum.

Heimildir
- Kókómjólk (50 ára) - Mjólkursamsalan
- Klói í Kanada - Mjólkursamsalan
- Níu milljónir ferna drukknar af Kókómjólk árlega - vísir
- Kókómjólk - Wikipedia
- Klói er orðinn köttaður - Vísir
- Hvít súkkulaði hátíðarútgáfa kókómjólkur - DV