Ráðstefnan, sem hefur verið haldin árlega í Svíþjóð, er hugsuð fyrir bæði meðlimi alþjóða „loðbolta” (e. furries) samfélagsins og aðra áhugasama. „Loðbolti” (e. furry) vísar í dýr með mannlega eiginleika eins og sést í mörgum klassískum sögupersónum teiknimynda og teiknimyndasögum, líkt og Andrési önd, Múmínálfunum, karakternum Sonic og fleirum.
Á ráðstefnum sem þessum hittast „loðboltar” og aðrir áhugasamir í tengslum við þetta sameiginlega áhugamál, m.a. til að búa til og selja list, klæða sig upp sem „loðbolta,” dansa, spila og skemmta sér. Oft er líka notað tækifærið og safnað fyrir góðgerðafélög sem tengjast dýravelferð en samfélag „loðbolta“ gerir þeim málaflokki sérstaklega hátt undir höfði.
Eitt af helstu markmiðum ráðstefnunnar í Malmö er einmitt að safna fé fyrir góðgerðafélag tengt dýrum og dýravelferð. Á hverju ári er beðið er um tilnefningar og kosið er um hvaða góðgerðafélag verður fyrir valinu. Það var kosið á milli fjölda tilnefndra dýravelferðarsamtaka af Norðurlöndunum og í ár varð Dýrahjálp fyrir valinu. Við erum afar þakklát, glöð og full tilhlökkunar yfir því að hafa verið valin.
Meðal fjáröflunarviðburða sem verða á ráðstefnunni í ár eru styrktartónleikar, sushi kvöldmatur, uppboð, kaup á teikningum o.fl.NordicFuzzCon var fyrst haldið árið 2013 þar sem yfir 170 þátttakendur frá 10 löndum tóku þátt. Í fyrra voru yfir 3.704 þátttakendur frá yfir 51 landi, sem gerir NordicFuzzCon að stærstu alþjóðlegu „loðbolta” ráðstefnu í Skandinavíu og þeirri þriðju stærstu í Evrópu. Árið 2024 söfnuðust yfir fjórar milljónir fyrir góðgerðafélagið UAnimals.
Þrír fulltrúar frá Dýrahjálp verða viðstaddir á ráðstefnunni: Valgerður stjórnarformaður, Sonja framkvæmdastjóri og Harpa, starfsmaður og hundaþjálfari. Þær munu sýna frá ráðstefnunni á samfélagsmiðlum og kynna svo félagið á sviði, svara spurningum og taka þátt í ýmsum fjáröflunarviðburðum.

