Hvað er Furry?

Loðboltar (e. furries)
Á íslensku köllum við þetta loðbolta áhugamál, en það er einfaldlega áhugi á dýrum sem eru persónugerfingar (e. anthropomorphic). Þetta er ekkert nýtt á nálinni, en með tilkomu heimsvefsins þá hefur það blómstrað og finnst víða.
Hvar finnur fólk persónugerfinga?
Persónugerfingar eru dýr (og hlutir) sem eru gæddir mannlegum eiginleikum, og það er nóg til þess að vera talið umfangsefni fyrir loðbolta. Það er líklegt að einhverjar af þínum uppáhalds teiknimyndum, tölvuleikjum, myndasögum, bíómyndum og sögum innihalda slíkar persónur.
Teiknimyndir
My Little Pony, Gargoyles, Beastars, All dogs go to heaven, Balto, Tommi og Jenni, Guffagrín, Hjálp! Ég er fiskur, Tulipop, Blæja og flest allt barnaefni...
Bíómyndir
Zootopia, Kung Fu Panda, Who framed Roger Rabbit, An all American tale, Aristocats, The Labyrinth, Fantastic Mr. Fox, allt frá Disney...
Tölvuleikir
Animal Crossing, Sonic the Hedgehog, Ratchet & Clank, Crash Bandicoot, Pokémon, Okami, Donkey Kong, Spyro the dragon...
Myndasögur
Andrés Önd, Mikki Mús, Bleiki pardusinn, Gormdýrin, kötturinn Grettir...
Sögur
Lísa í Undralandi, Paddington björn, Bangsímon, Watership Down, Eragon, Animal Farm, Warrior Cats, Charlotte's Web, The Jungle Book
Lukkudýr
Klói (Kókómjólk), Þorri Þorskur (Lýsi), BT músin, Tígri (Krakka DV), Georg mörgæs (Íslandsbanki)...
Þetta er mjög listrænt áhugamál
Ímyndunaraflið fer á flug við að hugsa hvernig væri að vera dýr í stað mannveru og lifa í slíkum heimum. Hvaða dýr myndir þú vera? Hvernig myndi það líta út? Þetta ýtir undir svo mikla listsköpun, fólk vill sjá persónuna sína, sýna öðrum og gera sögur. Þess vegna eru flestir sammála um að þetta er einstaklega listrænt áhugamál í sjálfu sér.
Hvernig uppgötvar maður sig í þessu áhugamáli?
Að ímynda sér hvernig væri að vera eitthvað annað dýr en mannvera er hvernig fólk áttar sig oft á því að það sé komið yfir loðbolta þröskuldinn. Þar sem þetta áhugamál er svo opið, þá skarast það mjög auðveldlega við ótal önnur áhugamál og fólk á það til að blanda þeim saman.
Flestir búa sér til persónur byggðar á sínum uppáhalds fyrirmyndum og þessar persónur (eða hliðarsjálf) hafa oft annan persónuleika á einhvern hátt eða algjörlega, jafnvel af gagnstæðu kyni. Fólk fer oft í einhvern hlutverkaleik (e. roleplay) sem persónurnar sínar, sérstaklega þegar það hefur aðgang að búningi. Fyrir suma er þetta einskonar sálræn meðferð til að finna félagskap og bæta sjálfstraust vegna þess að oft eru þeir sem finna sig í loðbolta samfélaginu utangarðs í daglegu lífi.
Er þetta virkilega svo saklaust áhugamál?
Það snýst allt um dálæti á persónugerfingum, hvort sem það eru persónur af eigin hönnun eða úr sögum. Fólk dettur alltaf misdjúpt í sín áhugamál, sama hvað umfangsefnið er. Það getur verið allt frá því að vera lausleg forvitni, sýna listræna hæfileika sína, kannski mæta á stakan hitting og mögulega gera sér markmið að eiga grímu til að klæðast við tækifæri, yfir í að vera lífstíll í fullum klæðum með reglulegum ráðstefnum.
Flestir uppgötva áhugann sem unglingar, og kjarni áhugamálsins snýst um listræna hæfileika og listunnendur. Loðboltum finnst einstaklega gaman að sjá persónurnar sínar koma til lífs í myndum og safna oft þannig myndlist af eigin persónum. Ein stærstu listaverkin eru svo heilu búningarnir sem fólk hefur af persónunum sínum.
Loðbolta samfélagið er einstaklega opið fyrir LGBTQ, hinsegin og skynsegin fólki. Þú finnur varla opnari eða vinalegri hóp af fólki.
Samfélag eins og hvað annað
Eins og í hverju öðru samfélagi, þá er fólkið mjög fjölbreytt, á öllum aldri, hefur sín eigin álit og það blandar saman sínum áhugamálum (sumt saklausara en annað), og það á það til að rugla utanaðkomandi um hvaða eiginleikar það eru sem tilheyra tilteknu áhugamáli.
En sama hvað áhugamálið er, við viljum minna ykkur á netöryggi.
Myndbönd sem fjalla um áhugamálið
Loðboltar í fjölmiðlum
Í gegnum árin hafa loðboltarnir sprottið upp í fjölmiðlum og sjónvarpsefni.
-
-
- Jóhanna þjóðfræðinemi skrifaði greinina "hvað er 'furry' annars?" á Vísir sem hefur fengið athygli
- DV skrifar um greinina og gerðu stutt útvarpsviðtal við hana um málið
- NordicFuzzCon styður Dýrahjálp með fjaröflunarviðburðum á samkomu sinni árið 2025.
- Það safnaðist 6,2 milljónir íslenskra króna (462þús sænskar).
- Stöð2 var með seríuna Afbrigði, þar sem áhugamálið okkar kom upp í fjórða þætti.
- Ingileif Friðriksdóttir tók viðtölin, "Erfiðast fyrir loðboltana að stíga fram"
- RÚV var með seríuna Nörd í Reykjavík, þar sem áhugamálið kom upp.
- Meðlimur hópsins var gestur á útvarpsþættinum K100, "Segjir reynt að sverta orðspor íslenskra loðbolta"
- Fréttablaðið birti greinina "Nýr formaður Furries"
- Hún.is birti greinina "Furries mæta fordómum"
- Stundin birti greinina "Íslenska loðfólkið óttast að vera afhjúpað"
- Jóhanna þjóðfræðinemi skrifaði greinina "hvað er 'furry' annars?" á Vísir sem hefur fengið athygli
-