Teymið á bak við IcelandFurs

Þetta er áhugamálshópur sem hefur verið í gangi síðan 2009. Honum hefur alltaf verið stýrt af sjálfboðaliðum þar sem þeir sem sýna mesta áhugann að hverju sinni hafa alltaf risið upp til að styðja að virkni í hópnum. Fólk kemur og fer í slíkum hlutverkum jafnt og hvernig áhugi fólks getur sveiflast og breyst með tímanum, áherslur breytast og oft ekki eins mikill tími til að stunda sín áhugamál. Við verðum alltaf þakklát í garð þeirra sem hafa fleytt þessum hóp áfram og það eiga allir hrós skilið.

Stjórn hópsins er byggð þannig að allir hafa jafn mikil áhrif á þróun mála og mikilvægar ákvarðanir eru teknar með atkvæðum. Við lærum af reynslunni og í  kjarnan erum við alltaf jafnir þáttakendur í þessu áhugamáli og ættum því öll að bera virðingu fyrir hvort fyrir öðru óháð hlutverki innan hópsins. 

Bjóða sig fram til að hjálpa!

Það er alltaf í boði að bjóða sig fram til að hjálpa IcelandFurs með umsjá hópsins ef viðkomandi er fullorðinn (18+) og virkur í hópnum. 

    • Sjá um samfélagsmiðla hópsins (eða vera í samstarfi)
    • Skipuleggja hittinga og viðburði
    • Finna áhugavert loðboltaefni til að skrifa um (eða skrifa það)
    • Það er örugglega eitthvað fleirra sem fólki dettur í hug til að hjálpa með

Hingað til hefur það alltaf verið jöfn ábyrgð meðlima að ýta af stað hittingum og viðburðum, óháð því hvort viðkomandi er í stjórn eða ekki. Ef þú vilt að eitthvað gerist, settu hugmyndina á borðið og látum það gerast saman.

Þróun stjórnar IcelandFurs

Formlega þá varð stærsta breytingin í stjórninni árið 2019 þegar fyrrverandi leiðtogi hópsins sagði af sér og tilkynnti það í Fréttablaðið, sem endaði með birtingu viðtals við MýraMidnight sem var þá sögð vera "nýr formaður furry". Upp frá því var hætt með stöðu leiðtoga í hópnum og er öllu stýrt jafnt af hópi sjálfboðaliða sem gera sitt besta til að styðja við félagslegt umhverfi loðbolta á Íslandi.

The team behind IcelandFurs

This is a hobby group that has been around since 2009. It has always been managed by volunteers that have been the most enthusiastic members at the time and rose up to support the community. Those who take leading roles come and go as interest in a hobby can change over time, priorities change and it often happens that we wont always have as much time to spend on our hobbies. We will always be thankful towards those who have kept this group going and everyone deserves a praise.

The management of the group is arranged so that everyone has equal say in how things develop and important decisions are made with voting. We learn from our experiences and at the core of it we are all equal participants in this hobby and should show everyone respect regardless of their role within the group.

Offering to help!

It is always possible to step forward to offer your help to IcelandFurs with taking care of the group if you are an adult (18+) and active in the group.

    • Take care of social platforms for the group (even being affiliates)
    • Organize meetups and events
    • Find things to write about that are of furry interest (or write it)
    • There are probably more things people can think of that they want to help with

The responsibility of initiating meetups and going to events has always been shared among the members, regardless if they are in management or not. If you want something to happen, propose the idea and make it happen with us.

Evolution of IcelandFurs management

The biggest formal change in the group's management was in 2019, when the former leader of the group stepped down and announced it in a local news paper (Fréttablaðið), which resulted in a published interview with MyraMidnight under the headline "new foreman of furries". Since then there has not been a leader role within the team and everything is managed equally by a group of volunteers that do their best to support the local furry community.