(Read the English version here...)
Það virðist vera kominn tími til að tala eitthvað um málið með IcelandFurZ frá byrjun. Einhverjir hafa vissulega verið að spá hvað í ósköpunum sé í gangi á ýmsum samfélagsmiðlum IcelandFurs undanfarið árið. Við höfum verið að forðast að ávarpa þessa dramatík, vildum ekki vera að gefa því athygli. Nýleg þróun í málinu breytti því.
Upphaflega var það í rauninni IceFurCabin, árlegar bústaðaferðir sem meðlimir IcelandFurs tóku þátt í. Fyrrverandi meðlimur hópsins sá um viðburðinn og ákvað að taka hann með sér úr hópnum og stofna í kringum það nýjan hóp undir IceFurCabin.is vefsíðunni.
Við höfum ekkert á móti því að það séu fleirri hópar á ferðinni fyrir Íslenska loðbolta samfélagið, sérstaklega fleirri viðburðir. Við erum jafnvel opin fyrir því að vera í samstarfi til að auglýsa hvort annað.
Ekki leið á löngu þar til gamlir samfélagsmiðlar IcelandFurs sem hópurinn hefur ekki lengur stjórn á fóru flestir að breyta nafninu yfir í IceFurCabin og auglýsa bæði viðburðinn og nýju heimasíðuna þeirra.

IceFurCabin verður að IcelandFurz
Eftir að viðburðurinn var liðinn þá var IceFurCabin.is skipt út fyrir IcelandFurZ.org með eftirfarandi yfirlýsingu: "IceFurCabin is also IcelandFurz, a new group" ("IceFurCabin er einnig IcelandFurz, nýr hópur").
Samfélagsmiðlarnir sem höfðu upphaflega verið IcelandFurs og næst IceFurCabin voru núna orðnir IcelandFurZ.
Síðan fóru þau að segja fólki að forðast Icelandfurs og koma í IcelandFurZ af því að þeirra hópur væri miklu betri og laus við dramatík samkvæmt þeim. Ekki mátti rugla hópunum saman af því að annar þeirra væri með Z í endann.
IcelandFurz er ekki IcelandFurs hópurinn
Þrátt fyrir það sem hafði komið á undan, þá fór IcelandFurZ allt í einu að telja fólki trú um að þeir væru í rauninni IcelandFurs. Það var í gangi í einhvern tíma. Þeir gerðu jafnvel nýja facebook síðu sem fór út í kostaða auglýsinga herferð til að sannfæra fólk.
Nokkru síðar, 10. Mars 2026, tilkynnti IcelandFurZ á samfélagsmiðlum að þeir væru núna formlega orðin IcelandFurs hópurinn með nýlegri skrásetningu vörumerkisins 'IcelandFurs'. Þau fóru svo að reyna að sannfæra hýsinguna okkar um að afhenda sér lénið okkar, í staðinn fyrir að fara í gegnum okkur.
Hér erum við komin heilan hring, þar sem samfélagsmiðlarnir eru komnir í upphaflega mynd, IcelandFurs.
IcelandFurs™ vörumerkið er ótengt IcelandFurs hópnum
Við vorum ekki látin vita af vörumerkis skrásettningunni fyrr en eftir að andmælafresturinn var liðinn, þegar þau höfðu samband til að bjóða okkur að sameina hópana til að mega nota nafnið áfram, við afþökkuðum tilboðið af því að við höfðum ekki tapað nafninu.
Þar sem vörumerkið nær eingöngu til viðskipta og IcelandFurs hópurinn stundar ekki viðskipti, þá hefur vörumerkið engin áhrif á hópinn að svo stöddu.
Við höfum verið að starfa undir nafninu IcelandFurs síðan 2009 og orðin vel þekkt á okkar sviði sem íslenskur loðbolta hópur. Einnig höfum við verið með lénið IcelandFurs síðan 2013 og notum það til að upplýsa fólk um áhugamálið á íslensku.
Þau voru vissulega vel meðvituð um tilvist þessa hóps þar sem þau gengdu hlutverki leiðtoga IcelandFurs á tímabili. Árið 2019 tilkynntu þau Fréttablaðinu um stöðubreytinguna sem endaði með birtingu viðtals við Mýra Midnight undir fyrirsögninni "Nýr formaður furry".
Það nýjasta sem IcelandFurZ eru að tilkynna á félagsmiðlum er að IcelandFurs sé núna almennt hugtak yfir íslenska loðbolta, sem í raun mætti þá ekki skrásetja sem vörumerki til að byrja með.
Heimildir
- Vörumerkið 'IcelandFurs' hjá Hugverkastofan
- IcelandFurZ og IceFurCabin á wikifur
- Heilmikið af skjáskotum af samfélagsmiðlum IcelandFurZ (fyrrverandi IcelandFurs aðgangar)
- Skjáskot af forsíðu IcelandFurz.org frá Nóvember 2025
- Skjáskot af forsíðu IcelandFurz.org frá Apríl 2026
Við vonum að þetta útskýrir eitthvað um þróun mála og við vonumst innilega að viðkomandi stofni sér nýjan og friðsælan hóp án áframhaldandi ágreinings við IcelandFurs hópinn.