Það er ein skemmtileg loðbolta ráðstefna haldin í Svíþjóð sem kallast NordicFuzzCon sem er haldin árlega.
NFC ráðstefnan er venjulega í febrúar á hverju ári, en hún var fyrst haldin árið 2013 þar sem 172 tóku þátt. Skráning opnast oft í september eða október, nokkrum mánuðum áður en ráðstefnan á sér stað og það eru takmörkuð laus pláss á því hóteli sem ráðstefnan verður haldin. Fólk á það til að sitja spennt eftir að skráning opnist til að tryggja sér herbeki strax á fyrsta degi þar sem miðar eru fljótir að klárast.
Á hverju ári er nýtt þema, heiðursgestur og tilnefnt góðgerðarfélag sem verður styrkt með fjáröflun á ráðstefnunni. Gaman er að nefna að Dýrahjálp Íslands varð fyrir valinu árið 2025 og náði ráðstefnan að safna um 6,2 milljónum króna til að styrja Dýrahjálp.
Seinasta ráðstefnan áður en covid skall á var haldin 2020 og mættu 1499 þáttakendur og árið eftir það var ráðstefnan haldin eingöngu á netinu með hjálp Discord en NFC 2022 var alveg fellt niður, eins og flestar samkomur á með covid skall á heiminn.
Það hefur ekki minnkað vinsældir NFC ráðstefnunnar, því að yfir 5000 gestir mættu á hana árið 2025 og þeir settu þakið við 5500 gesti fyrir 2026.
